Valur mætir liði frá Króatíu

Valur er Evrópubikarmeistari árið 2024.
Valur er Evrópubikarmeistari árið 2024. mbl.is/Jóhann Ingi

Evrópubikarmeistarar Vals voru í pottinum þegar dregið var í undankeppni Evrópudeildar karla í handbolta í dag.

Valur fær heimaleik fyrst í einvíginu gegn Bjelin Spacva Vinkovci frá Króatíu. Valur var í efri styrkleikaflokknum og Bjelin Spacva Vinkovci í neðri.

Fyrri leikurinn mun fara fram 31. ág­úst eða 1. sept­em­ber og seinni 7. eða 8. sept­em­ber en liðin leika þar um sæti í Evrópudeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert