Tilkynna komu Hauks

Haukur Þrastarson er orðinn leikmaður Dinamo Búkarest.
Haukur Þrastarson er orðinn leikmaður Dinamo Búkarest. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Haukur Þrastarson, landsliðsmaður í handknattleik, er genginn til liðs við Rúmeníumeistara Dinamo Búkarest. 

Haukur kemur til Dinamo Búkarest frá Kielce í Póllandi en hann var þar í fjögur ár.

Haukur er jafnframt fyrsti Íslendingurinn til að spila fyrir Dinamo Búkarest en félagið hefur orðið rúmenskur meistari átta sinnum í röð og er eitt af sextán liðum sem leika í Meistaradeild Evrópu í vetur.

Landsliðsmaður­inn var óheppinn á tíma sín­um hjá Kielce og meðal ann­ars slitið kross­band í tvígang. Hann kom vel inn í ís­lenska landsliðið á Evr­ópu­mót­inu í janú­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert