FH dróst með sænska liðinu Sävehof, franska liðinu Toulouse og annaðhvort Mors-Thyy frá Danmörku eða Gummersbach frá Þýskalandi í H-riðli Evrópudeildar karla í handknattleik.
Ef að Gummersbach vinnur Mors-Thy í undankeppni Evrópudeildarinnar þá munu lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar mæta í Kaplakrikann. Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson spila þá báðir fyrir þýska liðið.
Tryggvi Þórisson leikur með sænska liðinu Sävehof en það varð meistari á síðustu leiktíð.
Toulouse hafnaði þá í fjórða sæti frönsku deildarinnar á síðustu leiktíð.