Valsmenn í gífurlega sterkum riðli ef þeir vinna

Valsmenn geta mætt sterkum liðum.
Valsmenn geta mætt sterkum liðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Valsmenn verða með Porto frá Portúgal, Vardar Skopje frá Norður-Makedóníu og Melsungen frá Þýskalandi eða Elverum frá Noregi ef þeir vinna króatíska liðið Spacva Vin­kovci í undankeppni Evrópudeildarinnar í handbolta. 

Dregið var í riðla í dag en Valur mætir Spacva í tveimur leikjum. Sá fyrri fer fram 31. ágúst á Hlíðarenda og síðari 7. september ytra. 

Ef Valur vinnur bíða Porto, þar sem að Þorsteinn Leó Gunnarsson spilar, Vardar sem er stórlið frá Norður-Makedóníu og Melsungen, þar sem Elvar Örn Jónsson og Arnar Freyr Arnarsson spila, eða Elverum en þau fara einnig í undankeppnina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert