Frá Vestmannaeyjum á Selfoss

Sara Dröfn Richardsdóttir er orðin leikmaður Selfoss.
Sara Dröfn Richardsdóttir er orðin leikmaður Selfoss. Ljósmynd/Selfoss

Handknattleikskonan Sara Dröfn Richardsdóttir er gengin til liðs við Selfoss frá ÍBV. 

Hún skrifar undir þriggja ára samning við nýliða Selfoss, sem rústuðu B-deildinni á síðustu leiktíð. 

Sara Dröfn er uppalin hjá ÍBV og hefur spilað fyrir öll yngri landslið Íslands. Hún spilar í hægra horninu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert