Æfir hjá Guðjóni Val

Adam Thorstensen ásamt Guðjóni Val Sigurðssyni.
Adam Thorstensen ásamt Guðjóni Val Sigurðssyni. Ljósmynd/Gummbersbach

Handknattleikmarkvörðurinn Adam Thorstensen, leikmaður Stjörnunnar, æfir þessa dagana með þýska liðinu Gummersbach, sem Guðjón Valur Sigurðsson stýrir. 

Gummersbach greindi frá tíðindunum á heimasíðu sinni en Adam mun æfa með liðinu næstu þrjár vikurnar. 

Þá mun hann einnig spila æfingaleiki með liðinu en markvörður liðsins Dominik Kuzmanovic er með landlsiði sínu Króatíu á Ólympíuleikunum. 

Teitur Örn Einarsson tók þá þátt á sinni fyrstu æfingu með Gummersbach en hann gekk til liðs við félagið frá Flensburg fyrr í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert