Alfreð gerir breytingu rétt fyrir mót

Alfreð neyðist til að gera breytingu á liði sínu skömmu …
Alfreð neyðist til að gera breytingu á liði sínu skömmu fyrir mót. AFP/Ina Fassbender

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska handboltalandsliðsins, hefur kallað skyttuna Kai Häfner inn í landsliðið fyrir Ólympíuleikana. Franz Semper neyðist til að verða eftir í Þýskalandi vegna axlarmeiðsla.

Häfner er reyndur landsliðsmaður en hann spilar í hægri skyttustöðunni fyrir Stuttgart. Semper er lærisveinn Rúnars Sigtryggssonar hjá Leipzig þar sem hann berst um stöðu við Viggó Kristjánsson.

Fyrsti leikur Þjóðverja er gegn Svíum á laugardaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert