Framarar krækja í markvörð

Darija Zecevic er komin í Fram.
Darija Zecevic er komin í Fram. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svartfellski handboltamarkvörðurinn Darija Zecevic er gengin til liðs við Fram og hefur samið við félagið um að leika með því á komandi keppnistímabili.

Darija hefur leikið hér á landi frá 2019 en hún kom til ÍBV árið 2019 og var þar í tvö ár en hefur síðan spilað með Stjörnunni og verið einn besti markvörður úrvalsdeildarinnar.

Þá var hún á meðal leikenda í sjónvarpsþáttunum Aftureldingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert