Ólétt og leikur ekki með Val

Auður Ester Gestsdóttir
Auður Ester Gestsdóttir Árni Sæberg

Auður Ester Gestsdóttir er ólétt og leikur ekki með Val á komandi keppnistímabili í úrvalsdeild kvenna í handbolta.

Handbolti.is greinir frá fregnunum en Auður leikur í hægra horninu og skoraði 23 mörk fyrir liðið í deildinni á síðasta tímabili.

Valskonur unnu þrefalt á síðasta tímabili, deild, bikar og meistaratitilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert