Reynslubolti í markið hjá HK

Jovan Kukobat.
Jovan Kukobat. mbl.is/Eyþór Árnason

Markmaðurinn Jovan Kukobat mun taka slaginn með HK í úrvalsdeild karla í handbolta næstu tvö tímabil.

Hann hefur meðal annars spilað með KA, Þór og Víkingi en var síðast með Aftureldingu og komst með þeim alla leið í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn á síðasta tímabili en tapaði gegn FH.

Jovan er 36 ára og mun einnig aðstoða við þjálfun yngri markmanna hjá félaginu en hann hefur mikla reynslu.

Sigurjón Guðmundsson, fyrrum markmaður liðsins, er á leiðinni út en hann var í lykilhlutverki hjá liðinu á síðasta tímabili þegar það hélt sér uppi í úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert