Sá markahæsti framlengir

Hjörtur Ingi Halldórsson verður áfram með HK.
Hjörtur Ingi Halldórsson verður áfram með HK. mbl.is/Arnþór Birkisson

Hjörtur Ingi Halldórsson framlengdi samning sinn við HK í úrvalsdeild karla í handbolta á dögunum.

Hjörtur var markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili með 101 mark í 22 leikjum en liðið endaði í 10. sæti.

Hann hefur framlengt samning sinn við HK til tveggja ára en hann kom til liðsins frá Haukum um sumarið 2020.

„Hjörtur hefur verið lykilmaður liðsins og það er sérstaklega ánægjulegt að hann vilji halda áfram að leiða þann öfluga hóp sem hjá okkur er. Það verður gaman að fylgjast með Hirti og strákunum taka slaginn í Olísdeildinni í vetur,“ stóð í tilkynningu HK.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert