Íslenska U18 ára karlalandsliðið í handbolta vann sannfærandi sígur á jafnöldrum sínum frá Færeyjum, 32:23, í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í Podgorcia í Svartfjallalandi í kvöld.
Ásamt Íslandi og Færeyjum eru Ítalía og heimamenn í Svartfjallalandi einnig í riðlinum. Ítalir unnu Svartfjallaland, 32:30.
Íslenska liðið náði snemma góðri forystu og hélt hana út.
Dagur Árni Heimisson skoraði 13 mörk fyrir íslenska liðið. Þá skoraði Jens Bragi Bergþórsson fimm mörk.
Ísland mætir Ítalíu næst á morgun.