Í fyrsta sinn frá Ólympíuleikunum í Berlín?

Alfreð Gíslason stýrir þýska karlalandsliðinu.
Alfreð Gíslason stýrir þýska karlalandsliðinu. Kristinn Magnússon

Alfreð Gíslason gæti stýrt karlalandsliði Þýskalands í handbolta til sigurs á Ólympíuleikunum í fyrsta skipti síðan árið 1936. 

Þýskaland mætir Danmörku í úrslitaleik Ólympíuleikana rétt fyrir hádegi á sunnudaginn. 

Þjóðverjar unnu í handboltamóti karla á Ólympíuleikunum 1936, sem haldnir voru í Berlín.

Það var í fyrsta sinn sem keppt var í handbolta á Ólympíuleikunum. Þá voru leikir spilaðir úti og ellefu menn inn á vellinum.

Á þeim tíma var Adolf Hitler kanslari Þýskalands en Ólympíuleikarnir 1936 eru sögufrægir.

Aðeins sex lið tóku þátt í mótinu og vann Þýskaland Austurríki í úrslitaleiknum.

Tvenn silfurverðlaun og eitt brons 

Síðan þá hafa Þjóðverjar unnið tvenn silfurverðlaun og eitt brons í handbolta karla á Ólympíuleikunum. 

Fyrst í Los Angeles árið 1984 en þá töpuðu Þjóðverjar fyrir Júgóslavíu. Árið 2004 tapaði Þýskaland síðan fyrir Króatíu í úrslitaleiknum í Aþenu. 

Annars hafa Þjóðverjar þrisvar orðið heimsmeistarar, fyrst árið 1938, og tvisvar Evrópumeistarar. 

Dagur Sigurðsson stýrði Þjóðverjum að seinni Evróputitill þeirra árið 2016. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert