Ólafur frá Kúveit til Slóvakíu

Ólafur Brim Stefánsson í leik með Fram.
Ólafur Brim Stefánsson í leik með Fram. Kristinn Magnússon

Handknattleiksmaðurinn Ólafur Brim Stefánsson er genginn til liðs við Povazska Bystrica frá Slóvakíu. 

Ólafur Brim skrifar undir eins árs samning við slóvakíska félagið en hann kemur þangað frá liði í Kúveit. 

Í samtali við handbolta.is segir Ólafur að Povazska Bystrica hefur verið með næsta besta liðið í Slóvakíu og að það ætli sér að gera atlögu að meisturum Presov á komandi tímabili. 

Þá er liðið einnig i Evrópubikarnum, sem Valur vann fyrr á þessu ári, og mætir til leiks í annarri umferð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert