Ásbjörn Friðriksson, leikmaður Íslandsmeistara FH í handknattleik, hefur ákveðið að skrifa undir nýjan eins árs samning við félagið og tekur því slaginn með liðinu á komandi tímabili.
Auk þess að leika áfram með liðinu verður hann aðstoðarþjálfari Sigursteins Arndal, þjálfara FH, líkt og undanfarin ár.
Ásbjörn er 36 ára gamall og á að baki 465 leiki fyrir FH, sem gerir hann að sjötta leikjahæsta leikmanni liðsins frá upphafi.
Hann hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari með Hafnarfjarðarliðinu, einu sinni bikarmeistari og tvívegis deildarmeistari.