Dagur Árni Heimisson leikmaður KA var í gær valinn í úrvalslið Evrópumóts 18 ára og yngri í handbolta.
Ísland komst í undanúrslit á mótinu en tókst ekki að tryggja sér verðlaun þar sem liðið tapaði fyrir Danmörku og síðan Ungverjalandi í bronsleiknum.
Dagur Árni fær þó verðlaunagrip annað árið í röð en hann var einnig í úrvalsliði Evrópumóts 17 ára og yngri á síðasta ári.
Dagur skoraði 51 mark á mótinu í Svartfjallalandi.