Landsliðsmaðurinn glímir við meiðsli

Sigvaldi Björn Guðjónsson.
Sigvaldi Björn Guðjónsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik, er að glíma við meiðsli og hefur því ekki getað æft með Noregsmeisturum Kolstad, þar sem hann er fyrirliði, undanfarnar tvær vikur.

Á handboltasíðunni Norsk Topphåndball kemur fram að Sigvaldi Björn sé meiddur á fæti.

Gæti hann verið frá í tvær vikur til viðbótar. Fari svo missir hann af fyrsta leik Kolstad á nýju tímabili í norsku úrvalsdeildinni, gegn Runar Sandefjord þann 1. september.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert