Anton Breki semur við Selfoss

Anton Breki Hjaltason.
Anton Breki Hjaltason. Ljósmynd/Selfoss

Hægri skyttan Anton Breki Hjaltason hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss um tvö ár.

Anton var valinn leikmaður ársins í 3. flokki Selfoss á síðasta tímabili en hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki í úrvalsdeild karla í vetur. Selfoss féll úr deildinni og leikur í 1. deild á komandi keppnistímabili.

Anton var einnig valinn afreksmaður ársins í Handknattleiksakademíu Selfoss í vor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert