44 ára gamall Alexander Petersson heldur áfram

Alexander Petersson.
Alexander Petersson. mbl.is/Óttar Geirsson

Handknattleiksmaðurinn Alexander Petersson ætlar að taka annað tímabil með Valsmönnum. 

Alexander, sem er 44 ára gamall, verður þar með langelsti leikmaður úrvalsdeildarinnar í handbolta. 

Alexander staðfesti fregnirnar í Sportpakkanum á Stöð 2 í gær en hann var í stóru hlutverki hjá Val á síðustu leiktíð. 

Þá varð hann Evrópubikarmeistari með liðinu. 

Enn fremur tekur Alexander fram að komandi tímabil verði sennilega hans síðasta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert