Blekið þornar vart á Selfossi

Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð.
Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð. Ljósmynd/Selfoss

Handknattleiksdeild Selfoss heldur áfram að semja við unga og uppalda leikmenn karlaliðsins. Nú hefur Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð bæst í hóp þeirra.

Patrekur Þór skrifaði undir tveggja ára samning líkt og þeir Valdimar Örn Ingvarsson og Anton Breki Hjaltason gerðu fyrr í vikunni.

Patrekur Þór er vinstri hornamaður sem var markahæsti leikmaður Selfoss U með 97 mörk í 18 leikjum í 2. deild á síðasta tímabili.

Selfoss leikur í 1. deild á komandi tímabili eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni á því síðasta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert