Jóhannes vekur áhuga í Svíþjóð

Jóhannes Berg Andrason í leik með FH á síðasta tímabili.
Jóhannes Berg Andrason í leik með FH á síðasta tímabili. mbl.is/Óttar Geirsson

Handknattleiksmaðurinn Jóhannes Berg Andrason, leikmaður Íslandsmeistara FH, er undir smásjá sænska úrvalsdeildarfélagsins Kristianstad.

Staðarblaðið Kristianstadbladet greinir frá áhuga félagsins á honum í dag.

Jóhannes er 21 árs örvhent skytta sem Kristianstad hefur fylgst lengi með samkvæmt Handbolta.is.

Þó hafa engar viðræður átt sér stað að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert