Risasigur íslenska liðsins

Íslensku U18 landsliðsstelpurnar.
Íslensku U18 landsliðsstelpurnar. Ljósmynd/HSÍ

U18 ára kvennalandslið Íslands vann 15 marka sigur á jafnöldrum sínum frá Angólu, 36:21, í leiknum um 25. sætið á heimsmeistaramótinu í Kína í dag. 

Íslenska liðið endar því í 25. sæti. 

Ísland var með mikla yfirburði í leiknum en hálfleikstölur voru 18:11, Íslandi í vil. 

Íslensku stúlkurnar héldu sama dampi í seinni hálfleik og unnu að lokum mjög sannfærandi sigur. 

Mörkin dreifðust hjá íslenska liðinu en Dagmar Guðrún Pálsdóttir skoraði mest eða sex mörk. Ásrún Inga Arnarsdóttir skoraði fimm líkt og Lydía Gunnþórsdóttir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert