Akureyringurinn drjúgur

Dagur Gautason lék vel með Arendal.
Dagur Gautason lék vel með Arendal. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir.

Akureyringurinn Dagur Gautason átti góðan leik er Arendal tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum norska bikarsins í handbolta í dag.

Skoraði Dagur sjö mörk í 38:27-útisigri á Grenland. Árni Bergur Sigurbergsson komst ekki á blað hjá Arendal.

Dagur átti flott tímabil með Arendal á síðustu leiktíð en hann kom til félagsins frá uppeldisfélaginu KA.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert