Fór á kostum og bikar á loft

Óðinn Þór Ríkharðsson átti stórleik.
Óðinn Þór Ríkharðsson átti stórleik. Eggert Jóhannesson

Kadetten hafði betur gegn Kriens, 35:34, í framlengdum leik í Meistarakeppni svissneska handboltans í dag.

Óðinn Þór Ríkharðsson var markahæstur allra í leiknum með tíu mörk. Skoraði hann mörkin úr ellefu skotum og nýtti öll fjögur vítin sín.

Kadetten er ríkjandi Svisslandsmeistari og átti Óðinn stóran þátt í meistaratitli liðsins á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert