Íslendingaliðið vann með 36 mörkum

Sveinn Jóhannsson í búningi Kolstad.
Sveinn Jóhannsson í búningi Kolstad. Ljósmynd/Kolstad

Íslendingalið Kolstad fór afar illa með Rapp í 32-liða úrslitum norska bikarsins í handknattleik karla í kvöld. 

Kolstad vann leikinn með 36 mörkum, 53:17, og er komið í 16-liða úrslit. 

Sveinn Jóhannsson skoraði sjö mörk fyrir Kolstad en Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði ekki. 

Þá er Sigvaldi Björn Guðjónsson fyrirliði Kolstad að glíma við meiðsli og var ekki með. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert