Lykilmaður Vals ekki með í byrjun tímabils

Magnús Óli Magnússon.
Magnús Óli Magnússon. mbl.is/Óttar

Handknattleiksmaðurinn Magnús Óli Magnússon verður ekki með Valsmönnum fyrstu vikur keppnistímabilsins. 

Þetta staðfesti Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals í samtali við handbolta.is. 

Í umfjöllun miðilsins kemur fram að Magnús gekkst undir aðgerð í sumar vegna brotins þumalfingurs á hægri hönd. 

Aðgerðin gekk vel en brotið var á viðkvæmum stað og því þarf Magnús Óli að gefa sér góðan tíma til að jafna sín á fullu. 

Magnús Óli hefur verið lykilmaður hjá Val síðan hann gekk í raðir félagsins árið 2017. Hann varð Evrópubikarmeistari með Val í vor. 

Valsmenn mæta FH í Meistarakeppni HSÍ í Kaplakrika annað kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert