Verður ekki með Mosfellingum í vetur

Gunnar Kristinn Malmquist Þórsson.
Gunnar Kristinn Malmquist Þórsson. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Handknattleiksmaðurinn Gunnar Kristinn Malmquist Þórsson verður ekki með Aftureldingu á komandi tímabili. 

Þetta staðfesti Gunnar Magnússon þjálfari Aftureldingar í samtali við handbolta.is. 

Gunnar hefur verið lykilmaður í liði Aftureldingar síðustu tíu ár en hann gekk í raðir félagsins frá Val. 

Þá hafnaði hann í öðru sæti með Aftureldingu á síðustu leiktíð en félagið tapaði úrslitaeinvíginu gegn FH. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert