Dramatík í Svíþjóð – Arnar Birkir áfram

Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði tvö.
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði tvö. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Íslendingalið Karlskrona er úr leik í sænska bikarnum í handknattleik karla þrátt fyrir útisigur á Kristiandstad, 32:31, í kvöld. 

Ólafur Guðmundsson skoraði fimm mörk fyrir Karlskrona en Dagur Sverrir Kristjánsson skoraði eitt. Þorgils Jón Svölu Baldursson skoraði ekki. 

Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði ekki fyrir Kristiandstad sem fer áfram í útsláttarkeppnina ásamt Vinslöv. 

Arnar Birkir og félagar áfram

Arnar Birkir Hálfdánarson og liðsfélagar í Amo eru þá komnir áfram eftir sigur á Lagan, 31:27. 

Arnar Birkir skoraði tvö mörk. 

Tryggvi Þórisson skoraði þá eitt mark þegar að Svíþjóðarmeistarar Sävehof unnu Varberg þægilega, 38:28. 

Sävehof er komið áfram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert