Ómar Ingi frá vegna meiðsla

Ómar Ingi Magnússon.
Ómar Ingi Magnússon. Eggert Jóhannesson

Ómar Ingi Magnússon verður ekki með Magdeburg sem mætir Füchse Berlin í leik meistara meistaranna á sunnudag. Mikil meiðsli herja á leikmannahóp Magdeburg í kjölfar Ólympíuleikana.

Tvöfaldir meistarar Magdeburg mæta Refunum frá Berlín sem höfnuðu í öðru sæti deildarinnar á sunnudaginn en það verður án Ómars Inga, Tim Hornke og Felix Claar.

Hornke verður frá meirihluta tímabilsins með slitna sin í fæti en hann meiddist í leik Þjóðverja og Svía á Ólympíuleikunum. Claar er meiddur á hásin og verður fjarri næstu vikurnar, Daniel Petterson og Ómar Ingi glíma við vægari meiðsli en missa af öllum líkindum af leiknum á sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert