Björgvin Páll á skemmtilegum lista

Reynsluboltarnir Björgvin Páll Gústavsson og Alexander Petersson taka slaginn með …
Reynsluboltarnir Björgvin Páll Gústavsson og Alexander Petersson taka slaginn með Valsmönnum í vetur. mbl.is/Jóhann Ingi

Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson er á skemmtilegum fjögurra manna lista sem Evrópudeildin í handbolta birti á Instagram í gær.

Samfélagsmiðladeild keppninnar segir Björgvin Pál vera einn af reynsluboltunum sem vert er að fylgjast með í keppninni. 

Björgvin verður væntanlega í stóru hlutverki er Valur mætir króatíska liðinu Spacva í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Fyrri leikurinn fer fram á Hlíðarenda á morgun og seinni leikurinn í Króatíu viku síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert