Lið Guðmundar í átta liða úrslit

Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari Fredericia.
Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari Fredericia. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fredericia, undir stjórn Guðmundar Þ. Guðmundssonar, er komið í átta liða úrslit danska bikars karla í handknattleik efitr sigur á Midtjylland, 32:25, í kvöld. 

Fredericia var yfir í hálfleik, 15:13, og jók aðeins forskotið í þeim seinni. 

Íslendingarnir Einar Þorsteinn Ólafsson og Arnór Viðarsson skoruðu þá hvorugir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert