Góð byrjun á titilvörninni

Óðinn Þór Ríkharðsson lék vel.
Óðinn Þór Ríkharðsson lék vel. Ljósmynd/Kadetten

Svisslandsmeistarar Kadetten fara vel af stað í efstu deild handboltans þar í landi en liðið vann sannfærandi sigur á Bern á heimavelli í kvöld, 39:32.

Óðinn Þór Ríkarðsson átti enn og aftur góðan leik fyrir Kadetten og skoraði sex mörk úr sjö skotum.

Aðeins Svisslendingurinn Marvin Lier skoraði meira hjá Kadetten, eða sjö mörk.

Liðið varð meistari meistaranna um síðustu helgi og byrjar nýtt tímabil afar vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka