Sigurmarkið á síðustu sekúndunum

Blær Hinriksson brýst í gegnum vörn Hauka í leik liðanna …
Blær Hinriksson brýst í gegnum vörn Hauka í leik liðanna á síðasta tímabili. mbl.is/Kristinn Magnússon

Haukar höfðu betur gegn Aftureldingu, 27:26, á heimavelli í æsispennandi leik í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta á Ásvöllum í kvöld.

Mikið jafnræði var með liðunum allan fyrri hálfleikinn. Afturelding náði tveggja marka forskoti í stöðunni 10:8 en skömmu síðar var staðan orðin 12:11, Haukum í vil.

Þegar fyrri hálfleikur var allur var staðan hnífjöfn, 14:14, í hröðum, skemmtilegum og spennandi leik.

Þráinn Orri Jónsson var markahæstur hjá Haukum með fjögur mörk en níu Haukamenn komust á blað í hálfleiknum. Fimm leikmenn Aftureldingar komust á blað og skoraði Blær Hinriksson flest mörk eða fimm.

Jafnræðið hélt áfram í seinni hálfleik en Haukar voru meira yfir framan af. Var staðan 20:19 þegar seinni hálfleikur var tæplega hálfnaður og stefndi þá í æsispennandi lokakafla.

Haukar komust tveimur yfir, 23:20, þegar seinni hálfleikur var hálfnaður. Var það í fyrsta skipti sem munurinn var meiri en tvö mörk í leiknum. Haukar voru svo áfram yfir næstu mínútur og var munurinn tvö mörk þegar fimm mínútur voru eftir, 25:23. Afturelding gafst ekki upp því staðan var orðin 25:25 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir.

Í stöðunni 26:26 fékk Afturelding gullið tækifæri til að komast yfir þegar 40 sekúndur voru eftir. Aron Rafn Eðvarðsson varði hins vegar víti frá Birgi Steini og Haukar fengu tækifæri til að skora sigurmarkið hinum megin.

Það gerði Skarphéðinn Ívar Einarsson með glæsilegu skoti utan teigs og Haukar fögnuðu vel. 

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Haukar 32:20 Selfoss opna
60. mín. Arna Kristín Einarsdóttir (Selfoss) skoraði mark Hraðaupphlaup.
FH 27:23 Fram opna
60. mín. Aron Pálmarsson (FH) skoraði mark

Leiklýsing

Haukar 27:26 Afturelding opna loka
60. mín. Blær Hinriksson (Afturelding) fiskar víti 39 sekúndur eftir. Birgir á móti Aroni Rafni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert