Haukar höfðu betur gegn Aftureldingu, 27:26, á heimavelli í æsispennandi leik í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta á Ásvöllum í kvöld.
Mikið jafnræði var með liðunum allan fyrri hálfleikinn. Afturelding náði tveggja marka forskoti í stöðunni 10:8 en skömmu síðar var staðan orðin 12:11, Haukum í vil.
Þegar fyrri hálfleikur var allur var staðan hnífjöfn, 14:14, í hröðum, skemmtilegum og spennandi leik.
Þráinn Orri Jónsson var markahæstur hjá Haukum með fjögur mörk en níu Haukamenn komust á blað í hálfleiknum. Fimm leikmenn Aftureldingar komust á blað og skoraði Blær Hinriksson flest mörk eða fimm.
Jafnræðið hélt áfram í seinni hálfleik en Haukar voru meira yfir framan af. Var staðan 20:19 þegar seinni hálfleikur var tæplega hálfnaður og stefndi þá í æsispennandi lokakafla.
Haukar komust tveimur yfir, 23:20, þegar seinni hálfleikur var hálfnaður. Var það í fyrsta skipti sem munurinn var meiri en tvö mörk í leiknum. Haukar voru svo áfram yfir næstu mínútur og var munurinn tvö mörk þegar fimm mínútur voru eftir, 25:23. Afturelding gafst ekki upp því staðan var orðin 25:25 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir.
Í stöðunni 26:26 fékk Afturelding gullið tækifæri til að komast yfir þegar 40 sekúndur voru eftir. Aron Rafn Eðvarðsson varði hins vegar víti frá Birgi Steini og Haukar fengu tækifæri til að skora sigurmarkið hinum megin.
Það gerði Skarphéðinn Ívar Einarsson með glæsilegu skoti utan teigs og Haukar fögnuðu vel.