Arnór skákaði Guðmundi

Arnór Atlason, þjálfari Holstebro.
Arnór Atlason, þjálfari Holstebro. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Holstebro, sem Arnór Atlason þjálfar, vann sterkan sigur á Íslendingaliði Fredericia, 29:28, í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla í kvöld.

Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar Fredericia og þeir Arnór Viðarsson og Einar Þorsteinn Ólafsson leika með liðinu. Hvorugur þeirra komst á blað í kvöld.

Leikurinn var í járnum mestallan tímann en hafði Holstebro að lokum eins marks sigur. Sigurmarkið kom þremur sekúndum fyrir leikslok.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert