Einar framlengir við Fram

Einar Jónsson og Anton Gylfi Pálsson dómari.
Einar Jónsson og Anton Gylfi Pálsson dómari. mbl.is/Kristinn Magnússon

Einar Jónsson hefur komist að samkomulagi við handknattleiksdeild Fram um að þjálfa karlaliðið áfram til sumarsins 2026.

Í tilkynningu frá handknattleiksdeildinni segir að auk þess að þjálfa áfram meistaraflokk karla muni Einar halda áfram afreksþjálfun, þjálfun yngri flokka ásamt fleiri verkefnum innan félagsins.

Hann þjálfaði bæði karla- og kvennalið Fram á síðasta tímabili og hefur þjálfað karlaliðið frá árinu 2021. Áður hafði Einar þjálfað karlaliðið um langt skeið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert