Fyrsti bikarinn þegar í höfn

Leikmenn Wisla fagna sigrinum í Meistarakeppninni í gær.
Leikmenn Wisla fagna sigrinum í Meistarakeppninni í gær. Ljósmynd/Wisla Plock

Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, fagnaði fyrsta titlinum með Wisla Plock í Póllandi í gær.

Wisla vann þá erkifjendurna í Kielce, 27:23, í hinum árlega leik um Meistarabikar Póllands en liðin tvö hafa verið í sérflokki í landinu undanfarin ár og Wisla hafði betur í einvígi þeirra um meistaratitilinn síðasta vetur.

Viktor tók ekki þátt í leiknum en fagnaði með félögum sínum í leikslok.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert