Fer vel af stað í Portúgal

Þorsteinn Leó Gunnarsson byrjar vel hjá Porto.
Þorsteinn Leó Gunnarsson byrjar vel hjá Porto. Eyþór Árnason

Porto vann afar sannfærandi heimasigur á Vitória, 42:22, á heimavelli í 2. umferð portúgölsku A-deildarinnar í handbolta í kvöld.

Þorsteinn Leó Gunnarsson fer vel af stað hjá Porto og hann skoraði fjögur mörk fyrir sitt lið.

Porto vann sigur á Benfica, 27:24, í fyrsta leik og er með fullt hús stiga eftir tvo leiki.

Portúgalska liðið heimsækir Val í Evrópudeildinni 15. október og liðin leika í Portúgal 26. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert