Orri fagnaði sigri í Íslendingaslagnum

Orri Freyr Þorkelsson nýtti öll skotin sín.
Orri Freyr Þorkelsson nýtti öll skotin sín. Eggert Jóhannesson

Portúgalska liðið Sporting hafði betur gegn Wisla Plock frá Póllandi, 34:29, á heimavelli sínum í Lissabon í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Var leikurinn liður í fyrstu umferð A-riðils.

Orri Freyr Þorkelsson átti fínan leik fyrir Sporting og skoraði þrjú mörk úr þremur skotum. Viktor Gísli Hallgrímsson varði fjögur skot í marki Wisla Plock.

Martim Costa var markahæstur hjá Sporting með tíu mörk. Michal Daszek skoraði sjö fyrir Wisla Plock.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert