Óvissa með skærustu stjörnu Noregs

Nora Mørk hefur mögulega spilað sinn síðasta leik fyrir Noreg.
Nora Mørk hefur mögulega spilað sinn síðasta leik fyrir Noreg. AFP/Damien Meyer

Norska stjarnan Nora Mørk hefur mögulega spilað sinn síðasta leik fyrir handboltalandslið þjóðar sinnar.

Mørk, sem er 31 árs, hefur mikið glímt við meiðsli á ferlinum. Hún hefur unnið átta stórmót með norska liðinu og var í áraraðir ein allra besta handknattleikskona heims.

Hún hefur ekki getað beitt sér að fullu að undanförnu vegna meiðsla. Mikið álag með lands- og félagsliði hefur gert henni erfiðara fyrir.

Nettavisen í Noregi greinir frá að framtíð Mørk með landsliðinu sé í óvissu en hún átti sinn þátt í að Noregur varð ólympíumeistari í París í síðasta mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert