Lykilmaður Vals áfram á Hlíðarenda

Elín Rósa Magnúsdóttir.
Elín Rósa Magnúsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Handknattleikskonan Elín Rósa Magnúsdóttir hefur framlengt samning sinn við Íslands- og bikarmeistara Vals.

Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Elín Rósa, sem er 21 árs gömul, skrifaði undir þriggja ára samning á Hlíðarenda.

Hún er uppalin hjá Fylki í Árbænum en gekk til liðs við Val árið 2019 og hefur verið lykilmaður á Hlíðarenda undanfarin ár.

Hún skoraði fjögur mörk að meðaltali í leik með Valsliðinu á síðustu leiktíð þegar liðið vann þrefalt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert