Bikarmeistarar síðustu tveggja ára mætast

Blær Hinriksson sækir að marki Vals.
Blær Hinriksson sækir að marki Vals. mbl.is/Eyþór Árnason

Valur og Afturelding mætast í hörkuleik í 2. umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik á Hlíðarenda í kvöld. 

Valsmenn gerðu jafntefli við ÍBV í fyrstu umferð á meðan Afturelding tapaði fyrir Haukum.

Valsmenn urðu bikarmeistarar í vor en Afturelding vorið 2023. 

Þá mætast einnig ÍBV og Stjarnan í Vestmannaeyjum. 

Stjörnumenn höfðu betur gegn HK, 29:27, í fyrstu umferð en Kópavogsbúar sigruðu Íslandsmeistara FH í gær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert