Sautján íslensk mörk í Svíþjóð

Ólafur Guðmundsson skoraði fimm mörk fyrir Karlskrona í kvöld.
Ólafur Guðmundsson skoraði fimm mörk fyrir Karlskrona í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnusson

Fimm íslenskir handboltamenn skoruðu samtals 17 mörk í leikjum með liðum sínum í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Fjórir þeirra áttust við í Karlskrona þegar heimaliðið þar gerði jafntefli við Amo, 30:30. Ólafur Guðmundsson skoraði 5 mörk fyrir Karlskrona og Arnar Birkir Hálfdánsson fimm fyrir Amo.

Auk þess skoraði Þorgils Jón Svölu Baldursson tvö mörk fyrir Karlskrona og Dagur Sverrir Kristjánsson eitt.

Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði fjögur mörk fyrir Kristianstad sem vann öruggan sigur á Guif frá Eskilstuna, 33:24. Einar átti auk þess tvær stoðsendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert