Góð byrjun Gísla og Ómars

Gísli Þorgeir Kristjánsson lagði upp fimm mörk fyrir Magdeburg.
Gísli Þorgeir Kristjánsson lagði upp fimm mörk fyrir Magdeburg. Ljósmynd/@SCMagdeburg

Þýskalandsmeistarar Magdeburg unnu góðan útisigur á Hamburg, 32:26, í 2. umferð efstu deildar þýska handboltans í Hamburg í dag. 

Magdeburg hefur því unnið báða leiki sína hingað til á tímabilinu. 

Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg, fjögur þeirra af vítapunktinum. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði þá eitt mark en lagði fimm upp. 

Magdeburg mætir Kolstad frá Noregi í Íslendingaslag í Meistaradeildinni á fimmtudaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert