Bergischer, sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar, vann sterkan útisigur á Coburg, 25:24, í þýsku B-deildinni í handknattleik karla í gær.
Þar með hefur Bergischer byrjað nýtt tímabil með besta móti. Liðið er í öðru sæti með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar eftir að hafa einnig unnið í fyrstu umferð.
Bergischer féll úr þýsku 1. deildinni á síðasta tímabili og fær Arnór Þór það hlutverk ásamt Markus Pütz að reyna að koma liðinu aftur upp í deild þeirra bestu í ár.