Stórsigur Orra í Íslendingaslagnum

Orri Freyr Þorkelsson skoraði fjögur.
Orri Freyr Þorkelsson skoraði fjögur. Ljósmynd/Sporting

Sporting frá Portúgal vann stórsigur á danska liðinu Fredericia á útivelli í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld, 37:19.

Orri Freyr Þorkelsson átti fínan leik fyrir Sporting og skoraði fjögur mörk. Arnór Viðarsson gerði þrjú mörk fyrir Fredericia og Einar Þorsteinn Ólafsson eitt. Guðmundur Guðmundsson þjálfar danska liðið.

Ungverska liðið Veszpzrém gerði sér lítið fyrir og valtaði yfir París SG frá Frakklandi á heimavelli, 41:28. Bjarki Már Elísson skoraði eitt mark fyrir Veszprém.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert