Landsliðsmaðurinn Þorsteinn Leó Gunnarsson fór á kostum fyrir Porto er liðið valtaði yfir Nazare í efstu deild portúgalska handboltans í kvöld.
Þorsteinn gerði sér lítið fyrir og skoraði ellefu mörk fyrir stórliðið og var langmarkahæstur, því næstu menn skoruðu fimm mörk.
Porto er með fullt hús stiga eftir fimm leiki og óhætt að atvinnumannaferill Þorsteins fari vel af stað.