Hornamaðurinn Stiven Tobar Valencia átti flottan leik fyrir Benfica er liðið sigraði Horta, 45:22, á heimavelli í efstu deild portúgalska handboltans í dag.
Stiven skoraði sjö mörk og var markahæstur í Benfica ásamt Belone Moreira og Fabio Silva. Liðið er í fimmta sæti deildarinnar með ellefu stig.
Þá skoraði Orri Freyr Þorkelsson fjögur mörk fyrir Sporting í útisigri á Belenenses, 39:26. Sporting er á toppnum með 15 stig, eins og Þorsteinn Leó Gunnarsson og félagar í Porto.