Raðaði inn mörkunum á HM

Bjarki Már Elísson átti góðan leik.
Bjarki Már Elísson átti góðan leik. Ljósmynd/HSÍ

Ungverska liðið Vesprém átti ekki í neinum vandræðum með að sigra Taubaté frá Brasilíu í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramóti félagsliða en leikið var í Kaíró í Egyptalandi í dag.

Urðu lokatölur 43:17 og átti Bjarki Már Elísson sterkan leik fyrir Veszprém en hornamaðurinn gerði átta mörk.

Næsti leikur Bjarka og félaga er gegn Zamalek frá Egyptalandi á morgun klukkan 14.30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert