Ómar Ingi Magnússon átti góðan leik fyrir Magdeburg í 35:28-sigri liðsins gegn sádi-arabíska liðinu Al Khaleej á heimsmeistaramóti félagsliða í handbolta í Egyptalandi í dag.
Ómar skoraði sex mörk úr níu skotum í leiknum og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði þrjú úr þremur skotum. Þetta var 14. sigur Magdeburg í keppninni í röð.
Þetta var í þriðja sinn á þremur tímabilum sem liðin mætast og Magdeburg hefur sigrað í öll skiptin. Khaleej var þó aðeins marki undir, 23:22, þegar 14 mínútur voru eftir af leiknum en Magdeburg átti góðann lokakafla og sigraði að lokum